Um Rætur

Rætur byggðar á reynslu

Rætur er alhliða byggingafélag byggt á áratuga reynslu af byggingaverkefnum og rekstri. Starfsemin spannar þrjú meginviðfangsefni: almenna byggingaverktöku, nýbyggingu og sölu íbúðarhúsnæðis og langtímaleigu. Við leggjum áherslu á fagmennsku, skýr samskipti og vandaða niðurstöðu.

Starfsfólk Rætur
Starfsfólk Rætur
Gildi

Hvernig við vinnum

01

Gæði

Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð og góðan frágang.

02

Reynsla

Áratuga reynsla nýtist við skipulagningu, framkvæmd og úrlausn verkefna.

03

Traust

Gott samstarf byggist á skýrum samskiptum og því að standa við það sem samið er um.

Starfsfólk

Við vinnum sem ein heild

Ína Björk Hannesdóttir

Ína Björk Hannesdóttir

Framkvæmdastjóri og eigandi

Ellert Hannesson

Ellert Hannesson

Yfirverkefnastjóri og eigandi

Elli hefur unnið við smíðar síðan hann var unglingur og er því með hátt í 30 ára reynslu. Hann elskar að steypa hús og sjá þau rísa og verða að veruleika.

EH

Einar Hannesson

Byggingafræðingur, húsasmíðameistari og eigandi

Einar hefur starfað við húsasmíði og verkefnastjórnun við byggingaframkvæmdir alla sína tíð. Hann hefur meðal annars réttindi til að hanna hús og byggingastjóraréttindi, ásamt þekkingu og reynslu á öllu því sem varðar myglu.

Hannes Einarsson

Hannes Einarsson

Byggingastjóri og ráðgjafi

Hannes er húsasmíðameistari og byggingastjóri með yfir 50 ára reynslu. Hann hefur komið að öllum tegundum húsbygginga og er því ómetanlegur í ráðgjöf.

Robert Jan Pirog

Robert Jan Pirog

Innkaup og ráðgjöf

Robert er verkfræðingur með langa reynslu á byggingamarkaði — sérfræðingur og áhugamaður um byggingarefni og nýjungar. Auk þess listasmiður sem getur allt.

Dominik Wozniak

Dominik Wozniak

Byggingaverkamaður

Dominik hefur unnið við smíðar í áraraðir og er mjög reynslumikill. Hefur búið á Íslandi í 30 ár og talar fína íslensku.

Mieczyslaw Wroblewski

Mieczyslaw Wroblewski

Byggingaverkamaður

Miedek hefur unnið fyrir Rætur og fyrirrennara frá því um aldamót. Fór heim til Póllands í hruninu en er kominn aftur — frábær handverksmaður.

Salvar Gauti Ingibergsson

Salvar Gauti Ingibergsson

Húsasmiður

Salvar tók sveinspróf í húsasmíði eftir starfsnám hjá okkur. Duglegur, klár og ábyrgur ungur smiður.

Flosi Ómarsson

Flosi Ómarsson

Húsasmiður

Flosi er með sveinspróf í húsasmíði — og er líka atvinnuflugmaður.

MO

Marcin Orlikowski

Byggingaverkamaður

Marcin hóf störf hjá okkur haustið 2023 og hefur vaxið og dafnað í starfi.

JE

Jóhann Einarsson

Byggingaverkamaður

Jóhann hefur starfað við húsasmíði frá útskrift úr menntaskóla og hóf störf hjá okkur vorið 2025.

Byrjaðu verkefni

Ertu með verk sem þarf að vinna?

Segðu okkur stuttlega frá verkefninu. Þú getur sent með myndir, teikningar eða önnur gögn svo við getum betur áttað okkur á umfangi þess.