Leiga

Vandaðar íbúðir til langtímaleigu

Rætur fasteignafélag á 4 íbúðir til útleigu ásamt einu stöku herbergi og bílskúr. Áhersla er á vandaðar og fjölskylduvænar íbúðir í öruggri langtímaleigu.

Hringbraut 77 – Kjallari
3ja herbergja · 97 fm · Keflavík

Hringbraut 77 – Kjallari

3ja herbergja 97 fm íbúð á jarðhæð, aðeins niðurgrafin og öll gerð upp árið 2016. Stór herbergi og stór garður, staðsett miðsvæðis í Keflavík.

Hringbraut 77 – Miðhæð
3ja herbergja · 97 fm · Keflavík

Hringbraut 77 – Miðhæð

3ja herbergja 97 fm íbúð á miðhæð, öll gerð upp árið 2016. Stór herbergi og stór garður, staðsett miðsvæðis í Keflavík.

Hringbraut 136 – Íbúð
4ra herbergja · rúmlega 100 fm · Reykjanesbær

Hringbraut 136 – Íbúð

Glæsileg 4ra herbergja, rúmlega 100 fm íbúð með 3 svefnherbergjum. Öll nýuppgerð og vel skipulögð, opin og björt. Staðsett miðsvæðis í Reykjanesbæ nálægt Nettó og Reykjaneshöllinni. Geymsla í kjallara.

Hringbraut 136 – Herbergi
15 fm herbergi · Reykjanesbær

Hringbraut 136 – Herbergi

15 fm herbergi miðsvæðis í Reykjanesbæ með aðgang að baðherbergi með þvottavél. Lítill ísskápur og örbylgjuofn fylgja. Skápur og kommóða. Reykingar bannaðar og engin dýr leyfð.

Hringbraut 136 – Bílskúr
33 fm bílskúr · Reykjanesbær

Hringbraut 136 – Bílskúr

33 fm bílskúr með nýrri fjarstýrðri hurð. Hitaður með affalsvatni og frostfrír á veturnar. Leigður sem geymsla en ekki undir neins konar rekstur.

Hefur þú áhuga á eign? Sendu okkur fyrirspurn og taktu fram hvaða eign heillar þig. Framboð breytist og er staðfest með fyrirspurn.